
HVAÐ ER HANDLEIÐSLA?
Handleiðsla er aðferð til að þess að efla fagmennsku, vernda fagmanninn og tryggja gæði þjónustunnar. Handleiðsla hjálpar einstaklingnum að greina á milli einkalífs og starfs og beita faglegum aðferðum í starfi.
Hægt er að hafa samband með því að senda póst á handleidsla@gmail.com
MARKMIÐ
BÆTA LÍÐAN Í STARFI
AUKA STARFSÁNÆGJU
STYÐJA VIÐ GÓÐ SAMSKIPTI Á VINNUSTAÐ
LEGGJA GRUNN AÐ GÓÐRI OG ÖRYGGRI ÞJÓNUSTU
EFLA FAGLEG SAMSKIPTI VIÐ AÐRAR STOFNANIR OG FYRIRTÆKI

HANDLEIÐSLA ER FYRIR ÞAU SEM VILJA ÞROSKAST Í STARFI
FRÉTTIR
ANSE Summer University 2027 - Iceland
Dear ANSE members and network partners, Call for ANSE SU2027 workshops are now open until 1 Desember 2026 and we are looking forward to receiving proposals. The theme is Supervision as a Voice for Equality and Peace: In Love with Supervision. The A jury will decide which workshops will be included in the program for the ANSE SU2027 based on: Diversity of methods Diversity of speakers Diversity of themes Quality of the concept (participation, interactivity) Thematic fit We encourage you to...
Að efla hæfni og seiglu alla starfsævina með faglegri handleiðslu
Málstofa sem er ætluð fyrir stjórnendur og fagfólk. Málstofan verður haldinn í Herkastalanum að Suðurlandsbraut 72 í Reykjavík, 14. apríl 2026. Stjórnendur sem hafa áhuga á að styðja við velferð, hæfni/getu og seiglu síns starfsfólks og auka gæði og öryggi þjónustunnar. Fagfólk sem sinnir þjónustuþegum með flóknar þarfir og vill efla fagvitund sína og starfsánægju. Þessi málstofa mun m.a. fjalla um ávinning þess að nýta sér handleiðslu, hvað við skiljum sem faglega handleiðslu, hvaða hæfni...
Innleiðing handleiðslu fyrir fyrirtæki og stofnanir
Handleiðslufélag Íslands sendi nýverið út til fyrirtækja og stofnana skjal um innleiðingu á handleiðslu. Um er að ræða skjal sem nýtist við innleiðingu á handleiðslustefnu til að efla og styðja við starfsfólk og fagþróun. Boðið var upp á fjarfund í kjölfarið þar sem farið var yfir handleiðslustefnu og innleiðsluskref. Öllum er velkomið að nýta sér skjalið að vild og aðlaga það að sínum vinnustað.





